Ný aksturstafla tekur gildi og verður árgöngum keyrt á milli byggðarkjarna þannig að yngsta stig 1.-4. bekkur verður í skólahúsinu við Norðurgötu. Miðstig 5.-7. bekkur verður í skólahúsinu í Ólafsfirði og unglingastig verður til húsa á Rauðkutorgi á Siglufirði.
Grímuskylda er í skólabíl og verður skólaakstur aðeins fyrir nemendur skólanna í Fjallabyggð og Starfsfólk þeirra.
Allir fæddir árið 2010 og fyrr verða að bera viðurkennda andlitsgrímu í skólarútu og útvega hana sjálfir.
Tökum höndum saman og hjálpumst að á þessum erfiðum tímum og látum hlutina ganga upp.
Fjallabyggð býður uppá skóla- og frístundaakstur á milli byggðakjarna fyrir nemendur og starfsmenn grunnskóla. Almenningi er einnig fjálst að nota ferðrnar ef pláss er í bílnum.
Á Siglufirði er ekið að og frá Grunnskólanum við Norðurgötu og í Ólafsfirði er ekið að og frá Grunnskólanum við Tjarnarstíg. Skólaliði er starfandi í skólarútunni til aðstoðar fyrir skólabörnin.
Nemendum í 1. - 5. bekk úr Ólafsfirði er ekið til Siglufjarðar að morgni og til baka að skóladegi loknum
Nemendum í 6. - 10. bekk frá Siglufirði verður ekið til Ólafsfjarðar að morgni og til baka að skóladegi loknum.