Lokakeppni Stóru upplestrarkeppninnar

Hólmfríður Dögg og Sebastían Amor
Hólmfríður Dögg og Sebastían Amor

Lokakeppni Stóru upplestrarkeppninnar fór fram í Hlíðabæ við Eyjafjörð fimmtudaginn 27. apríl. Þar kepptu fulltrúar skólans, þau Hólmfríður Dögg Magnúsdóttir og Sebastían Amor Óskarsson, ásamt fulltrúum Grenivíkurskóla, Þelamerkurskóla, Hrafnagilsskóla, Árskógarskóla og Grunnskóla Dalvíkur. Nemendur stóðu sig með miklum sóma en lentu ekki í verðlaunasætum að þessu sinni. Sigurvegarinn kom frá Grenivíkurskóla.