Þarftu stuðning eða ráðgjöf?

Foreldrasími Heimilis og skóla
Foreldrasími Heimilis og skóla

Heimili og skóli hefur aukið þjónustu sína og býður upp á Foreldrasíma. Hann er hugsaður fyrir foreldra og fagfólk til að fá ráðgjöf og stuðning. Í Foreldrasímanum eru veittar upplýsingar um hvert skal leita með mál og ráðgjöf veitt eftir atvikum til að styðja við og efla foreldrasamstarf og jákvæð samskipti foreldra og skóla.