Grunnskóli Fjallabyggðar lenti í 2. sæti í Skólahreysti

Svava Rós, Silja Rún, Hrafnhildur Edda, Hlynur Freyr,  Dawid og Viktor Máni
Svava Rós, Silja Rún, Hrafnhildur Edda, Hlynur Freyr, Dawid og Viktor Máni

Skólahreysti var haldin í íþróttahöllinni á Akureyri miðvikudagskvöldið 26. apríl kl. 20 og var keppnin sýnd í beinni útsendingu á RÚV. Keppendur okkar voru þau Hrafnhildur Edda Ingvarsdóttir (hreystigreip og armbeygjur), Svava Rós Kristófersdóttir (hraðabraut), Hlynur Freyr Ragnarsson (hraðabraut) og Viktor Máni Pálmason (upphýfingar og dýfur). Varamenn voru Silja Rún Þorvaldsdóttir og Dawid Saniewski. Nemendur unglingadeildar fóru með rútu á keppnina ásamt kennurum sínum og studdu liðið áfram. Keppnisliðið stóð sig frábærlega og endaði í 2. sæti ekki nema ½ stigi frá fyrsta sætinu.

Glæsilegur árangur hjá okkar nemendum og hér má sjá myndir frá keppninni