Nemendur 6.-10. bekkjar hlaupa Ólympíuhlaup ÍSÍ

Miðvikudaginn 30. september munu nemendur 6.-10. bekkjar hlaupa Ólympíuhlaup ÍSÍ (hlaupið hét áður Norræna skólahlaupið). Eins og í fyrra hafa nemendur ákveðið að láta gott af sér leiða og safna áheitum fyrir Sigurbogann, styrktarfélag Sigurbjörns Boga Halldórssonar 8 ára fjölfatlaðs drengs í Fjallabyggð. Nemendur hlaupa 2,5 km hring og geta þau að hámarki hlaupið 4 hringi, þ.e. 10 km. Upphæðin á hvern hring er 250 krónur eða að hámarki 1000 krónur á hvern styrktaraðila.

Með von um jákvæðar undirtektir!

Nemendur 6.-10. bekkjar GF