- Skólinn
- Nám og kennsla
- Stoðþjónusta
- Nemendur
- Foreldrar
- Starfsfólk
Þann 30. september síðastliðinn hlupu nemendur 6.-10. bekkjar Ólympíuhlaup ÍSÍ.
Líkt og í fyrra var um styrktarhlaup að ræða en nemendur söfnuðu áheitum fyrir Sigurbogann, styrktarfélag Sigurbjörns Boga Halldórssonar skólabróður þeirra. Góð stemming var í hlaupinu og langflestir nemendur hlupu 10km. Kjörbúðin í Ólafsfirði styrkti framtakið með því að gefa drykki og orkubita sem nemendur fengu í hlaupinu. Stefnt er að því að afhenta upphæðina sem safnaðist til Sigurbogans á næstu dögum.
| Tjarnarstígur | 625 Ólafsfjörður Norðurgata | 580 Siglufjörður Sími á skrifstofu: 464-9150
|
Skrifstofa skólans er opin frá
Tilkynningar um leyfi eða veikindi nemenda er á Námfús eða í síma 464-9150 - ritari@fjallaskolar.is |