- Skólinn
- Nám og kennsla
- Stoðþjónusta
- Nemendur
- Foreldrar
- Starfsfólk
Þann 28. september tóku nemendur þátt í Ólympíuhlaupi ÍSÍ. Veðrið var ekki upp á sitt besta, nokkuð mikil rigning, en nemendur létu það ekki á sig fá, sýndu mikinn dugnað og stóðu sig mjög vel. Hlaupinn var 2,5 km hringur og hlupu sumir nemendur 4–5 hringi. Hlaupið hófst kl. 10:30 og stóð fram að hádegismat. Dagurinn heppnaðist mjög vel.
Þann 2. október tóku nemendur í 6.–10. bekk þátt í Ólympíuhlaupi ÍSÍ. Veðrið lék við nemendur og voru aðstæður til hlaupsins mjög góðar. Nemendur sýndu mikinn dugnað og stóðu sig flestir afar vel í hlaupinu. Nemendur hlupu 2,5 km hring og var mest hægt að fara 4 hringi. Við skólann var drykkjarstöð þar sem þátttakendur gátu fengið sér hressingu. Eftir hlaupið gafst nemendum kostur á að fara í sund, slaka á og njóta samverunnar. Dagurinn heppnaðist vel og voru bæði nemendur og starfsfólk ánægð með daginn.
| Tjarnarstígur | 625 Ólafsfjörður Norðurgata | 580 Siglufjörður Sími á skrifstofu: 464-9150
|
Skrifstofa skólans er opin frá
Tilkynningar um leyfi eða veikindi nemenda er á Námfús eða í síma 464-9150 - ritari@fjallaskolar.is |