Nemendur plokkuðu í bænum

Plokkdagurinn
Plokkdagurinn

Stóri plokkdagurinn er haldinn um allt land þann 30. apríl en þar sem það var á sunnudegi þetta árið var plokkað á þriðjudeginum 2. maí í staðinn. Nemendur í 5. - 9. bekk, leikskólabörn og nemendur í MTR tóku höndum saman og plokkuðu í bænum. Þegar plokkararnir höfðu klárað að plokka söfnuðust þeir saman við MTR og gæddu sér á ávöxtum eftir vel heppnaðan dag.