Samrómur - lestrarhestar Grunnskóla Fjallabyggðar þurfa aðstoð

Nú er verkefnið Samrómur (lestrarkeppni grunnskóla) hafið aftur og langar okkur til þess að vera með. Grunnskóli Fjallabyggðar er skráður inn og leitum við til ykkar með að aðstoða okkur við þetta verkefni. Þetta gæti verið skemmtileg viðbót við heimalestur og sem samstarfsverkefni innan fjölskyldunnar.

Um verkefnið segir:
Til þess að tölvur og tæki skilji íslensku svo vel sé þá þarf mikinn fjölda upptaka af íslensku tali frá allskonar fólki. Þess vegna þurfum við þína aðstoð, með því að smella á "Taka þátt" þá getur þú lesið upp nokkrar setningar og lagt ,,þína rödd" af mörkum. Við viljum sérstaklega hvetja fólk sem hefur íslensku sem annað mál að taka þátt. Það er á okkar valdi að alltaf megi finna svar á íslensku (tekið af heimasíðu verkefnisins).

ÝTIÐ HÉR TIL AÐ TAKA ÞÁTT!