Skólaakstur fellur niður í dag

Ákveðið hefur verið að fella niður skólaakstur í dag 15.desember vegna veðurs. Nemendur 7. bekkjar og unglingastig taka nám sitt heima í gegnum Goggle classroom. Nemendur í 1.-6. bekk mæta á starfsstöðina í sinni heimabyggð.  Kennt verður eftir óveðursskipulagi. Lengd viðvera tekur við að loknum skóladegi fyrir þá sem þar eru skráðir.