Skólahald verður með breyttum hætti

Skólahald verður með breyttum hætti frá og með morgundeginum 3. nóvember.

Ný aksturstafla tekur gildi og verður árgöngum keyrt á milli byggðarkjarna þannig að:

Yngsta stig 1.-4. bekkur verður í skólahúsinu við Norðurgötu.

Miðstig 5.-7. bekkur verður í skólahúsinu í Ólafsfirði.

Unglingastig verður til húsa á Rauðkutorgi á Siglufirði. 

Grímuskylda er í skólabíl og verður skólaakstur aðeins fyrir nemendur skólanna í Fjallabyggð og Starfsfólk þeirra. 
Allir fæddir árið 2010 og fyrr verða að bera viðurkennda andlitsgrímu í skólarútu og útvegar skólinn grímur.

Tökum höndum saman og hjálpumst að á þessum erfiðum tímum og látum hlutina ganga upp.