Úrslit Ljóðaflóðs 2021

Úrslit í ljóðasamkeppni grunnskólanema, Ljóðaflóð 2021, liggja nú fyrir. Menntamálastofnun, í samstarfi við Krakkarúv, efndi til keppninnar í tilefni af degi íslenskrar tungu. Í keppninni var ljóðformið frjálst og ánægjulegt að sjá hversu fjölbreytt ljóð bárust, bæði hvað varðar form og innihald en nemendur ortu m.a. um samskipti, veiruna, umhverfismál, náttúruna, vináttu, tilgang lífsins, ástina, tilfinningar og jafnrétti.

Nemendur sömdu bæði bundin og óbundin ljóð, hækur og myndljóð en alls bárust 503 ljóð frá 25 skólum víðs vegar að af landinu. Frá yngsta stigi bárust 55 ljóð, 191 frá miðstigi og 257 ljóð frá unglingastigi.

Einum nemanda á hverju stigi voru veitt bókaverðlaun og viðurkenningarskjal fyrir besta ljóðið en vinningshafarnir þetta árið komu frá Álftamýrarskóla, Ártúnsskóla og Ingunnarskóla. 

Menntamálastofnun birti fleiri ljóð sem voru á meðal þeirra bestu og þar áttum við nokkra  fulltrúa bæði á yngsta og elsta stigi. Við í Grunnskóla Fjallabyggðar viljum óska nemendum okkar til hamingju. Hér koma ljóðin sem voru birt: