Útivistardagur að hausti - sjá myndir

Útvistardagur 1. - 10. bekkjar
Útvistardagur 1. - 10. bekkjar

Skv. skóladagatali er haldinn útivistardagur að hausti. Starfsfólk og nemendur gripu tækifærið og áttu góðar stundir saman í náttúrunni. 

Þann 3. september fóru nemendur í 2. og 3. bekk í skógræktina þar sem þeir tóku þátt í skemmtulegum skógarratleik. Flestir gengu svo aftur í skólann. Nemendur í 4. bekk fóru upp að Stóra-Bola og máluðu steina. Þeir sem vildu, gengu alla leið upp á Stóra-Bola, nutu útsýnisins og gengu svo syngjandi til baka. Nemendur í 5. bekk fóru upp í Hvanneyrarskál. Þeir fengu mjög gott útsýni og áttu skemmtilega stund saman.

Daginn eftir fóru nemendur í 1. bekk að Bakkatjörn. Það var rigning og frekar svalt en nemendur létu það ekki á sig fá og skemmtu sér vel. Þeir hoppuðu í polla, sungu rigningarlög og áttu góðan dag saman. 

Í gær gengu nemendur í 6. og 7. bekk Skeggjabrekkudal í dásamlegu veðri. Nemendur fóru að vaða í vatninu og sumir ákváðu að hoppa út í. Þetta var skemmtilegur dagur og eftir hádegismat fóru nemendur í sund þar sem þeir skemmtu sér vel. 

Nemendur í 8. -10. bekk höfðu val um að ganga upp í Hvanneyrarskál eða ganga yfir Siglufjarðarskarð (frá Hraunum). Báðar gönguferðirnar heppnuðust vel og voru allir ánægðir enda frábært veður þennan dag. 

Sjá myndir hér