Annar í hvítasunnu

Annar í hvítasunnu er mánudagurinn eftir hvítasunnudag og líkt og hann almennur frídagur. Nánast ekkert tilstand er í dag hérlendis á hvítasunnudag nema hátíðarmessur í kirkjum og einnig er hann oft notaður sem fermingardagur. Hinsvegar hefur annar í hvítasunnu ekki yfir sér nokkra helgi né kirkjulegt hlutverk annað en að vera frídagur eftir hvítasunnudag.

Almennt eru engir aðrir siðir tengdir þessum dögum sem haldið er upp á nema þar sem annar í hvítasunnu er almennur frídagur er það helst að meðal almennings er þetta fyrst og fremst fyrsta mögulega ferðahelgi sumarsins þar sem hún er þriggja daga frí.

Heimild:

Íslenskt almanak