Uppstigningardagur

Uppstigningardagur sem einnig hefur verið nefndur upprisudagur eða uppstigudagur er 40 dögum eftir páska eða fimmtudagurinn í fimmtu viku eftir páska og 10 dögum fyrir hvítasunnu.

Er hann helgidagur kristinna til minningar um himnaför Jesú eins og henni er lýst í Biblíunni. En þar stendur að tíu dögum fyrir hvítasunnu var hann „upp numinn til himins“ að lærisveinunum ásjáandi og „ský huldi hann sjónum þeirra“.

Minningarathöfn um himnaförina var fyrst haldin á hvítasunnu uns hún var færð yfir sinn eigin dag. Var dagurinn um tíma kallaður helga þórsdag í almanökum hér á landi en það nafn náði ekki fótfestu þar sem á þeim tíma var byrjað að nota orðið fimmtudagur í stað þórsdagur.

Heimild:

Íslenskt almanak