Viðbragðsáætlun ef skólaakstur raskast á miðjum skóladegi vegna ófærðar

Nemendum ekið í sinn byggðarkjarna og skólastarf heldur áfram.


Framkvæmd:
● Bílstjóri og skólastjóri taka ákvörðun um aksturinn.
● Forsjáraðilar fá skilaboð í Mentor/SMS/tölvupóst.
● Nemendur látnir vita.
● Skólarútan flytur nemendur milli byggðarkjarna.
● Starfsmaður fylgir hverri ferð.
● Við heimkomu taka kennarar og starfsmenn á móti sínum hópum.
● Skóladagur heldur áfram samkvæmt óveðursplani.


Mikilvægt:
● Enginn nemandi er sendur heim nema í samráði við forsjáraðila.
● Skólinn/Frístund ber ábyrgð á nemendum þar til forsjáraðili sækir eða lætur
vita um annað.