- Skólinn
- Nám og kennsla
- Stoðþjónusta
- Nemendur
- Foreldrar
- Starfsfólk
Þann 9. nóvember sl. fögnuðum við baráttudegi gegn einelti og var hann tileinkaður vinnu gegn einelti og sá eineltisteymið um skipulagningu hans. Um tvær kennslustundir voru teknar undir vinnuna.
Við Norðurgötu var 1. - 4. bekk skipt upp í hópa þvert á bekki og unnin ýmis samvinnuverkefni. Farið var í spurningakeppni, veggmynd unnin, farið í hugleiðslu og íþróttaleiki í salnum. Við Tjarnarstíg var 5. - 10. bekk einnig skipt í hópa þvert á bekki. Þar var einnig farið í spurningakeppni, leiki í íþróttasal, veggspjöld unnin, málað á steina og ein útistöð var þar sem poppað var í eldstæði skólans.
Dagurinn var virkilega vel heppnaður og nemendur og starfsmenn ánægðir að honum loknum.
| Tjarnarstígur | 625 Ólafsfjörður Norðurgata | 580 Siglufjörður Sími á skrifstofu: 464-9150
|
Skrifstofa skólans er opin frá
Tilkynningar um leyfi eða veikindi nemenda er á Námfús eða í síma 464-9150 - ritari@fjallaskolar.is |