Dagur íslenskrar tungu haldinn hátíðlegur

Dagur íslenskrar tungu 2026
Dagur íslenskrar tungu 2026

Haldið var upp á Dag íslenskrar tungu mánudaginn 16. nóvember á fæðingardegi Jónasar Hallgrímssonar. Nemendur 1.-5. bekkjar komu saman á sal þar sem hver bekkur hafði æft atriði, ýmist söng eða ljóðaupplestur. Stundin heppnaðist mjög vel og voru atriðin vel æfð og skemmtileg.

Nemendur 6. og 7. bekkjar unnu saman á stöðvum þar sem unnin voru mismunandi verkefni eins og orðarugl, orðaveggur, texta-boðhlaup og eins léku nemendur ákveðin orð með látbragðsleik. Skipt var í lið og gátu liðin safnað stigum. 

Nemendur unglingadeildar kepptu í Kappsmáli en kennari þeirra hafði útbúið útgáfu af sjónvarpsþáttunum vinsælu fyrir nemendur að etja kappi.