Fjármálaleikar - verðlaunaafhending

10. bekkur. Á myndina vantar þrjá nemendur.
10. bekkur. Á myndina vantar þrjá nemendur.

Í gær var ánægjuleg stund í skólanum þegar nemendum 10. bekkjar voru veitt verðlaun fyrir sigur í Fjármálaleikunum 2022. Leikarnir, sem eru spurningakeppni milli grunnskóla í fjármálalæsi, eru haldnir ár hvert og það eru nemendur í 8. - 10. bekk víðs vegar að af landinu sem taka þátt. Þau Elsa Guðrún Jónsdóttir og Helgi Jóhannsson fulltrúar fjármálafyrirtækja komu í skólann og veittu nemendum verðlaunin sem eru farandbikar og peningaupphæð að upphæð 150 þúsund krónur. Nemendur bekkjarins hafa ákveðið að gefa hluta af upphæðinni til mannúðarmála í Úkraínu. Framundan er síðan Evrópukeppni Fjármálaleikanna og mun bekkurinn tilnefna tvo fulltrúa til að taka þátt í þeirri keppni sem fram fer á netinu þann 10. maí.

Grunnskóli Fjallabyggðar hefur staðið sig vel í leikunum undanfarin ár en það er stærðfræðikennari unglingadeildar, Sigurlaug Ragna Guðnadóttir, sem heldur utan um keppnina hér hjá okkur. Glæsilegur árangur hjá þessum flottu nemendum okkar í 10. bekk og við óskum þeim innilega til hamingju.