Fjölbreytileikanum fagnað í dag - sjá myndir

Alþjóðadagur Downs-heilkennis
Alþjóðadagur Downs-heilkennis

Í tilefni af alþjóðadegi Downs-heilkennis mættu nemendur og starfsfólk í ósamstæðum sokkum til að fagna fjölbreytileikanum.  

Sameinuðu þjóðirnar lýstu því formlega yfir árið 2011 að 21. mars væri alþjóðadagur Downs-heilkennis og með það að markmiði að auka vitund og minnka aðgreiningu.

Dagsetningin er táknræn því hún vísar til þess að Downs-heilkenni er orsakað af auka litningi 21, þ.e. þrjú eintök af litning 21 = 21.03