Gjöf frá foreldrafélaginu

Foreldrafélag Grunnskóla Fjallabyggðar gaf yngra stigi skólans gjöf nú á vordögum. Foreldrafélagið hefur boðið mið- og unglingastigi upp á fræðslu síðustu ár og því var reynt að finna eitthvað skemmtilegt að gera fyrir yngsta stigið. Í ár var tekin sú ákvörðun að gefa búnað til íþróttaiðkunar. Félagið hafði því samband við Malín Mist íþróttakennara á yngsta stigi og fékk hana til að taka saman hvaða búnað vantaði eða þyrfti að endurnýja.

Gjöfin var afhent á sal og veitti Malín Mist henni viðtöku. Þetta voru badmintonspaðar, fótboltar, skotboltar, handboltar, svampteningar og grindur. 

Grunnskóli Fjallabyggðar vill þakka foreldrafélaginu fyrir góða gjöf sem mun nýtast vel bæði í kennslu og leik.