Glæsilegur árangur hjá Sigurlaugu og Tinnu

Sigurlaug Sturludóttir og Tinna Hjaltadóttir
Sigurlaug Sturludóttir og Tinna Hjaltadóttir

Lokakeppni stóru upplestrarkeppninnar fór fram í Bergi á Dalvík kl. 15 miðvikudaginn 27. apríl. Þar kepptu fulltrúar skólans, þær Sigurlaug Sturludóttir og Tinna Hjaltadóttir ásamt fulltrúum Grenivíkurskóla, Þelamerkurskóla, Hrafnagilsskóla, Árskógarskóla og Grunnskóla Dalvíkur. Stúlkurnar stóðu sig með miklum sóma og það fór svo að Sigurlaug lenti í 2. sæti og Tinna í 3. sæti. Sigurvegarinn kom frá Grenivíkurskóla.

Til hamingju Sigurlaug og Tinna með frábæran árangur.

 

Þrjú efstu sætin

Þrjú efstu sætin