Grunnskóli Fjallabyggðar hlaut styrk úr sjóðnum Forritarar framtíðarinnar

Forritarar framtíðarinnar
Forritarar framtíðarinnar

Grunnskóli Fjallabyggðar hefur hlotið styrk úr sjóðnum Forritarar framtíðarinnar. Styrkurinn er 11 borðtölvur og stefnt er að afhendingu búnaðar fyrir 1. september 2023.

Í ár styrkti sjóðurinn 30 skóla um sem nemur rúmum 5,5 milljónum króna. Styrkir skiptast í tvo meginflokka, annars vegar er úthlutað um 3,7 milljónum króna vegna námskeiða sem kennarar geta sótt til að efla sig í forritunarkennslu og hins vegar er úthlutað um 1,8 milljónum króna til kaupa á smátækjum í forritunar- og tæknikennslu ásamt úthlutun á notuðum tölvubúnaði sem hollvinir FF gefa sjóðnum árlega.

Sjóðurinn er samfélagsverkefni sem hefur það hlutverk að efla og auka áhuga á forritunarmenntun og hagnýtingu á tækni í skólum landsins. Framtíðarsýn sjóðsins er aukin fræðsla og áhugi á meðal barna og unglinga á forritun og tækni. Sjá nánar um sjóðinn hér Forritarar framtíðarinnar

Við í Grunnskóla Fjallabyggðar viljum þakka Forriturum framtíðarinnar kærlega fyrir styrkinn sem á eftir að nýtast okkur vel.