Hugmyndavinna um Mundýjarstofu farin af stað

Mundýjarstofa
Mundýjarstofa
Hugmyndavinna um Mundýjarstofu er farin af stað. Fjórir aðilar hafa tekið að sér að halda utan um verkefnið og eru það þær Birna Hlín Hilmarsdóttir, Halla Óladóttir, Kolbrún Gunnarsdóttir og Ríkey Sigurbjörnsdóttir. Veturinn verður nýttur í hugmyndavinnu, skoðunarferðir og innkaup á efniviði. Ef allt gengur að óskum þá er stefnt á að Mundýjarstofa verði opnuð haustið 2027 í húsnæði skólans við Norðurgötu.