- Skólinn
- Nám og kennsla
- Stoðþjónusta
- Nemendur
- Foreldrar
- Starfsfólk
Kveðjuræða skólastýru - vor 2026
Kæru nemendur, foreldrar, forráðafólk, starfsfólk og aðrir gestir - verið velkomin á skólaslit þetta vorið.
Margt hefur borið á góma í skólastarfinu í vetur og þið kæru nemendur hafið brallað ýmislegt -upplifað og búið til minningar sem fylgja ykkur áfram, ásamt því námi sem þið hafið tileinkað ykkur með hjálp ykkar góðu kennara og starfsfólki skólans.
Ég er ánægð og stolt með árangur alls þess fólks sem að skólastarfinu kom í vetur – þá á ég við vinnu allra - nemenda, foreldra, forráðafólks og starfsfólks.
Um einstaka þætti þess sem gert var í vetur er hægt að lesa um í starfsáætlun skólans þannig að mig langar að nota tækifærið hér og ræða um aðra hluti.
En á stundum sem þessum nýti ég tækifærið og ræði um gildi Grunnskólans. Þau eru þrjú Kraftur – Sköpun – Lífsgleði með metnað og virðingu að leiðarljósi.
Þegar ég horfi á þessi gildi kemst ég að því að þau fanga það sem fanga þarf í góðu skólastarfi. Hér er rekið gott og farsælt skólastarf sem byggir á gömlum rótum um leið og horft er til framtíðar með það í huga að virkja nærsamfélag og náttúru.
Við getum alltaf gert betur í þeim efnum og sérstaklega má horfa meira til þess að nýta umhverfið og náttúruna í kennslu skólans. Kannski er lífið hér á Tröllaskaga almennt svo samofið náttúrunni að það atriði að flétta hana meira inn í kennslu er ekki eftirtektarvert. En það eru forréttindi að geta farið með nemendur rétt út fyrir dyrnar til að auðga kennsluna lífi og gera hana áhugaverða á svo margan hátt.
Þá kemur fram í kafla um sýn Grunnskólans sem settur var á blað vorið 2019 - að starfið í skólanum hafi mótandi áhrif á samfélagið með sterka byggðarsýn og fjölbreytta starfshætti að leiðarljósi. Þar kemur einnig fram að allt skólastarf sé samstarfsverkefni skólasamfélagsins.
Ég hef nær alltaf sagt þegar ég hef haft tækifæri til - að skólasamfélagið er í mínum huga samfélag allra sem koma að þeim tíma í uppeldi barns er spannar grunnskólagöngu þess. Því má leiða að því líkur að starf skólans komi við nær hvert einasta heimili í bæjarkjörnunum tveimur í Fjallabyggð með einum eða öðrum hætti. Allstaðar eru foreldrar, forráðafólk, starfsfólk, ættingjar eða vinir sem á einn eða annan hátt koma að barni í skóla.
Við verðum að styrkja samtal milli allra sem að skólastarfi grunnskóla Fjallabyggðar koma á einn eða annan hátt svo uppeldið á barninu í þorpinu gangi vel og skili farsælum árangri.
Við höfum til þess ágæt verkfæri svo sem samskiptamiðla í alls kyns útgáfum, nálægð og nágrannaspjall, góða stjórnsýslu og fleira. En það sem við þurfum líka er áhugi – áhugi á því að efla samskipti og samtal þeirra sem koma að starfi með börnum í Fjallabyggð.
Nú eru yfirstaðnar kosningar og hvet ég nýja fulltrúa fræðslumála að vinna ötullega að gerð nýrrar fræðslustefnu og gæta þess að fulltrúar allra hagaðila komi þar að borðinu.
Margt hefur breyst frá árinu 2017 þegar gildandi stefna var samin og nú er lag að gera nýja og taka þar inn allar hugsanlegar breytur sem þróun í umhverfi okkar og tækni hafa fært okkur s.s. kennslu á notkun gervigreindarinnar og annarra hluta sem breyst hafa síðan 2017.
Við skulum öll hafa áhuga og ánægju af því að koma þessum fallegu börnum sem hér eru til manns.
Við skulum hjálpa börnunum í Fjallabyggð að taka með sér orðin í gildum Grunnskólans - Kraft, sköpun og lífsgleði. Hjálpum þeim til að hafa kraft til að vakna lífsglöð að morgni og skapa daginn þannig að úr verði gjöfult líf.
Kennið þeim að nýta allt það sem þau hafa í kringum sig til að þora og hafa hugrekki til að stíga ný skref inn í framtíðina. Það eru tækifæri allstaðar ef þau hafa kraftinn og lífsgleðina til að nýta sér þau tækifæri.
Kennið þeim að vera varkár og að fara varlega en um leið að vera áræðin. Kennið þeim að ræða við hvort annað og þá sem þeim þykir vænt um og þau treysta ef þau eru í vafa eða í vandræðum með eitthvað - hvort sem það er verkefni eða ákvarðanir.
Kennið þeim að nýta sér lýðræðislegan rétt sinn til að hafa rödd – bæði fyrir sig sjálf og aðra. Kennið þeim að láta sig annað fólk varða. Kennið þeim að sýna samkennd og að taka þátt ef þau vilja bæta eitthvað sem þeim finnst ekki vera rétt.
Kennið þeim að greina aðalatriði frá aukaatriðum, kennið þeim að þekkja mun á falsfréttum og rökstuddum réttum fréttum.
Kennið þeim að tapa ekki sjálfstæði sínu, kennið þeim að standa með sinni sannfæringu ef þau hafa á tilfinningunni að hún sé sú rétta. Kennið þeim um leið að hlusta samt á aðra og meðtakið þeirra skoðanir án þess endilega að samþykkja þær.
Hjálpið þeim við að tapa aldrei gleðinni, þá er allt svo vonlaust. Takið ákvörðun með þeim um að vera glöð og kát - Þá er allt betra.
Að þessu sögðu langar mig að þakka ykkur öllum – nemendum, foreldrum, forráðafólki og ekki síst starfsfólki fyrir gott og gjöfugt skólastarf í vetur – ég þakka jafnframt fyrir fyrir mig sem skólastýra síðustu þrjú árin.
| Tjarnarstígur | 625 Ólafsfjörður Norðurgata | 580 Siglufjörður Sími á skrifstofu: 464-9150 |
Skrifstofa skólans er opin frá
|
Tilkynningar um leyfi eða veikindi nemenda á Mentor eða í síma 464-9150/ ritari@fjallaskolar.is
Kt. 580706-0880