- Skólinn
- Nám og kennsla
- Stoðþjónusta
- Nemendur
- Foreldrar
- Starfsfólk
Efnt var til lestrarkeppni í 1. til 7. bekk þar sem hver nemandi átti að skrá mínútufjöldann sem hann las heima fyrir fyrstu tvær vikur ársins. Flestir nemendur og foreldrar tóku þátt og létu ekki skíðaferðalag letja þátttöku í lestrarkeppninni.
Þrjú efstu sætin í hverjum bekk fengu viðurkenningarskjal fyrir flestar lesnar mínútur heima fyrir. Á bóndadeginum fengu nemendur viðurkenningarskjal á söngsal á Norðurgötu. Þessi keppni er vonandi komin til að vera og verður því árlegur viðburður í Grunnskóla Fjallabyggðar. Hugsunin er að aðstoða nemendur að koma sér í gang eftir jólafríið svo þeim gangi vel í lesfimisprófi sem er alltaf í janúar.
Nemandinn með flestar mínútur las að meðaltali einn klukkutíma og 11 mínútur, hann las 1559 mínútur á tveimur vikum. Glæsileg frammistaða hjá honum og hinum nemendunum! Grunnskóli Fjallabyggðar óskar þeim til hamingju með flotta frammistöðu og öllum þeim nemendum sem tóku þátt.
| Tjarnarstígur | 625 Ólafsfjörður Norðurgata | 580 Siglufjörður Sími á skrifstofu: 464-9150 |
Skrifstofa skólans er opin frá
|
Tilkynningar um leyfi eða veikindi nemenda á Mentor eða í síma 464-9150/ ritari@fjallaskolar.is
Kt. 580706-0880