Litla upplestrarkeppnin 5. bekkur

Litla upplestrarkeppnin
Litla upplestrarkeppnin

Litla upplestrarkeppnin var haldin seinni partinn í maí. Nemendur í 5. bekk tóku þátt og spreyttu sig á upplestri. Anna Rósa kennari sá um að þjálfa nemendur og halda utanum keppnina. Nemendur lásu smá hluta úr sögu og eitt ljóð sem þeir höfðu valið sér. Nemendur í 1. - 4. bekk horfðu á keppnina og voru þrír dómarar sem dæmdu sigurvegara. Kristján Ingi Elfuson stóð uppi sem sigurvegari en allir nemendur stóðu sig vel og voru til fyrirmyndar.