Sigurvegararnir Sara Sól Ragnarsdóttir og Rósant Mikael Moritz Ástuson
Litla upplestrarkeppnin hjá 5. bekk fór fram í íþróttasal skólans þann 9. apríl sl. Alls tóku 16 nemendur þátt í keppninni undir leiðsögn Önnu Rósu Vigfúsdóttur íslenskukennara.
Nemendur lásu textabúta úr bókinni „Kennarinn sem hvarf“ eftir Bergrúnu Írisi Sævarsdóttur og fluttu einnig ljóð að eigin vali. Flutningurinn var fjölbreyttur og vandaður, og greinilegt að nemendur höfðu lagt mikla vinnu í að undirbúa sig. Allir þátttakendur stóðu sig með miklum sóma.
Í dómnefnd sátu Guðrún Unnsteinsdóttir kennari, Halla Óladóttir kennari og Haukur Orri Kristjánsson tónlistarkennari og viljum við þakka þeim fyrir faglegt og gott starf og að sýna keppninni áhuga. Dómnefndin var sammála því að þau
Sara Sól Ragnarsdóttir og
Rósant Mikael Moritz Ástuson höfðu staðið sig best og eru því sigurvegarar
Litlu upplestrarkeppninnar í 5. bekk árið 2026.
Við óskum öllum þátttakendum innilega til hamingju með frábæran árangur og þökkum fyrir ánægjulega stund.