Óli Björn og Marínó Örn aðalmenn og Óliver Jökull varamaður

Óli Björn aðalmaður, Óliver Jökull varamaður og Marínó Örn  aðalmaður
Óli Björn aðalmaður, Óliver Jökull varamaður og Marínó Örn aðalmaður

Nemendur 7. bekkjar hafa í vetur æft vandaðan upplestur og framkomu og tóku þátt í undankeppni Stóru upplestrarkeppninnar. Keppnin var haldin í skólahúsinu við Tjarnarstíg þriðjudaginn 22. apríl kl. 17:00 og var foreldrum og öðrum aðstandendum boðið að koma og horfa á. Nemendur lásu texta úr skáldsögunni Strokubörnin á Skuggaskeri eftir Sigrúnu Eldjárn og ljóð eftir Braga Valdimar Skúlason og Aðalstein Ásberg Sigurðsson. Þriggja manna dómnefnd valdi tvo aðalmenn og einn varamann sem munu taka þátt í lokakeppni Stóru upplestrarkeppninnar

 

Þriðjudaginn 28. apríl fer fram lokakeppni Stóru upplestrarkeppninnar þar sem nemendur í 7. bekkjum við utanverðan Eyjafjörð munu keppa til úrslita í upplestri. Keppnin fer fram kl. 13:30 í Tjarnarborg Ólafsfirði.

 

Þeir nemendur sem komust áfram voru  Marínó Örn Óskarsson og Óli Björn Þorvaldsson. Óliver Jökull Brynjarsson var valinn sem varamaður.

 

Til hamingju Marínó Örn, Óli Björn og Óliver Jökull!

 

Stóra upplestrarkeppnin hefur verið haldin í fjöldamörg ár en verkefnið hófst á degi íslenskrar tungu, 16. nóvember.  Yfirlýst markmið verkefnisins er að vekja athygli og áhuga í skólum á vönduðum upplestri og framburði. Það bætir almennan lesskilning barna og unglinga og eflir sjálfsvirðingu og virðingu fyrir öðrum. Einnig er verkefnið hvetjandi fyrir nemendur með lestrarerfiðleika. 

 

Sjá fleiri myndir hér fyrir neðan: