Opið hús - sjá myndir

Ánægðir nemendur
Ánægðir nemendur

Í gær var opið hús í Grunnskóla Fjallabyggðar þar sem allir voru velkomnir í skólann til að kynna sér hvað nemendur okkar hafa verið að gera í vetur. Til dæmis buðu nemendur í 3. bekk  gestum að kynna sér örnefni í Fjallabyggð og nemendur  í 5. bekk voru með pítsastað og bakarí þar sem þeir seldu vörur úr pappír og æfðu sig í að reikna með almennum brotum og peningum. 

Eins og sjá má á myndunum sem fylgja fréttinni skemmtu nemendur, starfsfólk og gestir sér vel.

Sjá myndir hér