- Skólinn
- Nám og kennsla
- Stoðþjónusta
- Nemendur
- Foreldrar
- Starfsfólk
Þann 1. ágúst síðastliðinn tók ég við starfi skólastjóra Grunnskóla Fjallabyggðar og mig langar til að þakka kærlega öllum þeim sem sendu mér, eða settu á samfélagsmiðla, falleg orð í minn garð þegar ráðningin var gerð opinber. Ég las hverja einustu kveðju og þótti afar vænt um hana.
Segja má að skólar séu hjarta hvers samfélags og því fylgir mikil ábyrgð að stýra skólastofnun. Ég tek þessu hlutverki bæði af þakklæti og auðmýkt. Skólasamfélagið er stórt; í raun er hver einasti íbúi Fjallabyggðar hluti af því, nemendur, starfsmenn, foreldrar eða aðrir aðstandendur. Þannig snertir skólastarfið hvert einasta heimili.
Skólar eru einar mikilvægustu stofnanir landsins. Þeir eru vettvangur þar sem börn og unglingar læra, þroskast, eignast vini, takast á við áskoranir og byggja upp sjálfstraust. Þar starfar öflugur hópur fólks sem leggur sig fram á hverjum degi við að skapa öruggt, hvetjandi og metnaðarfullt námsumhverfi fyrir nemendur okkar.
Mig langar að leggja mitt að mörkum til að efla jákvæða umræðu um skólann okkar. Það skiptir máli hvernig við tölum um skólastarfið, hvernig við tölum um nemendur okkar og hvernig við tölum um það fólk sem vinnur í skólanum. Öll berum við ábyrgð. Börn heyra hvernig fullorðnir tala um skólann sinn. Orð skipta máli og þau hafa áhrif á líðan, sjálfsmynd og menningu.
Það þýðir ekki að við eigum að líta fram hjá því sem betur má fara. Þvert á móti. Góður skóli er skóli sem er sífellt að læra, þróast og leita leiða til að verða enn betri. En slíkt verður best gert í opnu, heiðarlegu og skynsömu samtali þar sem við berum virðingu hvert fyrir öðru og vinnum saman að lausnum.
Ég hlakka til að kynnast nemendum, starfsfólki og foreldrum betur á komandi vikum og mánuðum. Ég veit að Grunnskóli Fjallabyggðar býr yfir fjölmörgum styrkleikum og ég hlakka til að byggja á þeim, ásamt öllu því öfluga fólki sem í skólanum starfar. Saman getum við skapað skóla þar sem metnaður, virðing, vellíðan og gleði fara saman.
Ég hlakka til samstarfsins og þeirrar vegferðar sem framundan er.
Guðrún Unnsteinsdóttir
skólastjóri
| Tjarnarstígur | 625 Ólafsfjörður Norðurgata | 580 Siglufjörður Sími á skrifstofu: 464-9150 |
Skrifstofa skólans er opin frá
|
Tilkynningar um leyfi eða veikindi nemenda á Mentor eða í síma 464-9150/ ritari@fjallaskolar.is
Kt. 580706-0880