- Skólinn
- Nám og kennsla
- Stoðþjónusta
- Nemendur
- Foreldrar
- Starfsfólk
- Matseðill og skráning í mat
Ákveðið hefur verið að seinka byrjun á skóladegi nemenda í 8. – 10. bekk veturinn 2025-2026. Skóladagurinn mun hefjast kl. 8:50 og nemendur á Siglufirði hafa kost á að taka skólarútu sem fer 8:30 í stað 7:40 áður.
Rökin fyrir þessu eru aðallega þau að þrátt fyrir aukna vitundarvakningu um mikilvægi svefns þá sofa margir unglingar of lítið og hópur þeirra sem sofa of stutt fer stækkandi milli ára sem er mikið áhyggjuefni. Rannsóknir sýna að andleg líðan þeirra sem fá ekki nægan svefn fer versnandi en ljóst er að tengsl svefns og andlegrar heilsu eru töluverð.
Könnun var gerð meðal foreldra og forráðafólks nemenda á unglingastigi og var mikill meirihluti fylgjandi því að seinka skóladeginum.
Þessi seinkun hefur ekki veruleg áhrif á lengingu skóladagsins heldur verður horft til þess að nýta upplýsingatækni og fjarkennslu einn tíma á viku til viðbótar við þann fjarkennslutíma sem þegar er í töflu. Einungis einn dag, fimmtudag verða nemendur til kl. 15:20 í skólanum.
Um er að ræða tilraunaverkefni og fyrirkomulagið tekið til skoðunar vorið 2026 og kannað hvernig til hefur tekist.
Við vonum að þessar breytingar verði nemendum grunnskólans til góðs og almenn sátt ríki um málið.
Tjarnarstígur | 625 Ólafsfjörður Norðurgata | 580 Siglufjörður Sími á skrifstofu: 464-9150 |
Skrifstofa skólans er opin frá
|
Tilkynningar um leyfi eða veikindi nemenda á Mentor eða í síma 464-9150/ ritari@fjallaskolar.is
Kt. 580706-0880