Síldarminjasafnið tilnefnt til íslensku safnaverðlaunanna 2022

Í gær var tilkynnt hvaða söfn eru tilnefnd til íslensku safnaverðlaunanna 2022 og er Síldarminjasafnið í hópi þeirra fimm safna sem tilnefnd eru til verðlaunanna.

Síldarminjasafnið er tilnefnt til íslensku safnaverðlaunanna fyrir framúrskarandi fræðsluverkefni sem unnið var í samstarfi við Grunnskóla Fjallabyggðar 2020-2021 og hafði valnefnd verðlaunanna þetta um verkefnið að segja: 

Síldarminjasafn Íslands – framúrskarandi fræðsluverkefni

Síldarminjasafn Íslands á Siglufirði stendur vörð um þann merka kafla í þjóðarsögunni sem síldin markar og kallaður hefur verið síldarævintýrið. Um er að ræða eitt stærsta safn landsins þar sem sögu síldarárana eru gerð skil með metnaðarfullri sýningargerð og öflugu fræðslustarfi.

Síldarminjasafnið hefur um árabil tekið á móti skólahópum á öllum námsstigum, frá leikskóla til háskóla. Síðustu ár hefur safnið unnið að metnaðarfullu fræðsluverkefni sem nefnist „Safn sem námsvettvangur“, í samvinnu við Grunnskóla Fjallabyggðar. Þar eru samþætting námsgreina, skapandi starf og virkni nemenda og samvinna við nærsamfélagið á meðal áhersluatriða.

Markmið verkefnisins er að kynna fjölbreyttan starfsvettvang safnsins fyrir börnum og unglingum á tveimur eldri stigum grunnskóla og gefa þeim færi á að sjá og skynja safnið frá öðru sjónarhorni en almennir safngestir. Námskeiðin eru þróuð í samstarfi við starfsfólk Grunnskóla Fjallabyggðar og þau sniðin að hverjum aldurshópi fyrir sig, með tilliti til gildandi aðalnámskrár og markmiða skólastarfsins. Kennslan fer fram í húsakynnum Grunnskólans og Síldarminjasafnsins og hljóta nemendur fræðslu um starfsemi safns; allt frá varðveislu gripa til skráningar, heimildasöfnunar, rannsókna, miðlunar, leiðsagna og almennrar kynningastarfsemi safnsins.

Vetrarstarfið býr börnin undir það stóra og ábyrgðarmikla hlutverk að stjórna safninu í einn dag. Nemendur taka yfir safnið í einn dag og ganga í fjölbreytt störf; afgreiðslu, leiðsagnir um sýningar safnsins, vinnu í geymslum, vinnu við ljósmyndakost, forskráningu gripa og svo framvegis, með það að markmiði að miðla gestum því sem þau hafa lært á skólaárinu. Þannig hafa börnin stórt og þýðingarmikið markmið fyrir augum á skólaárinu og með þessu móti eru vonir bundnar við að augu íbúa í nær samfélaginu opnist enn frekar því faglega starfi sem fer fram á safninu og á söfnum almennt. Mikil ánægja var með verkefnið hjá nemendum sem og einstaklingum og stofnunum sem að því komu og íbúum nærsamfélagsins.

 

Sjá nánar hér:

Síldarminjasafnið