Skólaslit 4.júní 2021

Skólaslit Grunnskóla Fjallabyggðar verða þrískipt þetta vorið.

 

Skólaslit í 1. 5. bekk verða frá kl. 10.00 -11:20 .

Nemendur frá Ólafsfirði taka skólabílinn kl. 9:30 og heim aftur kl. 11:40. Nemendur mæta allir í skólahúsið á Siglufirði og eiga kveðjustund með starfsfólki.

Ekki er gert ráð fyrir foreldrum á þessi skólaslit.

 

Skólaslit fyrir 6.-9. bekk verða í skólahúsinu við Tjarnarstíg frá kl. 13:00-14:00. Nemendur frá Siglufirði taka skólabíl kl. 12:40 frá skólahúsinu í Norðurgötu og heim aftur kl. 14:15.

 Ekki er gert ráð fyrir foreldrum á þessi skólaslit.

 

Útskrift 10.bekkjar fer fram í Tjarnarborg kl. 17.00

Ávarp skólastjóra, tónlistaratriði, ávarp nemenda, viðurkenningar fyrir góðan árangur í námi er á dagskránni.

Foreldrar nemenda í 10.bekk eru velkomnir á þessi skólaslit

 

Skólastjóri