Skólasýning í Grunnskóla Fjallabyggðar

Næsta miðvikudag 9. maí er Skólasýning í Grunnskóla Fjallabyggðar.

Að þessu sinni verður sýningin meira lifandi en oft áður þar sem það verður hægt að sjá nemendur vinna að ýmsum verkefnum. Einnig verða verk nemenda úr skólastarfinu í vetur til sýnis.

9. bekkur verður með kaffisölu á báðum stöðum og mun ágóði renna í ferðasjóð þeirra. Enginn posi verður á staðnum.
Sýningin verður opin sem hér segir:

  • Norðurgata Siglufirði kl. 16-18
  • Tjarnarstíg Ólafsfirði kl. 17-19

Rútuferðir eru sem hér segir:

  • Frá Ólafsfirði kl. 16:15
  • Frá Siglufirði kl. 17:30
  • Frá Ólafsfirði kl. 18:45

Aðgangur að sýningunni er ókeypis og eru foreldrar, afar og ömmur, systkini, frændur, frænkur og aðrir íbúar sveitarfélagsins hvattir til að nota tækifærið og koma við í skólanum.