- Skólinn
- Nám og kennsla
- Stoðþjónusta
- Nemendur
- Foreldrar
- Starfsfólk
Stóra upplestrarkeppnin var haldin í Tjarnarborg þann 28. apríl sl. 10 nemendur úr grunnskólum við utanverðan Eyjafjörð stigu á svið og fluttu valin textabrot úr íslenskum bókmenntum.
Skáld keppninnar að þessu sinni voru þau Brynhildur Þórarinsdóttir og Þórarinn Eldjárn.
Brynhildur Þórarinsdóttir er einn af okkar öflugustu barnabókahöfundum og jafnframt dósent við kennaradeild Háskólans á Akureyri. Hún er margverðlaunuð fyrir verk sín, meðal annars fyrir að færa Íslendingasögurnar til yngri lesenda á lifandi og aðgengilegan hátt. Í skrifum sínum blandar hún gjarnan saman nútíma og sögu, húmor og alvöru – og nær þannig til breiðs hóps lesenda. Brynhildur er ekki bara höfundur – hún er líka öflugur talsmaður íslenskrar tungu og lestrar. Hún minnir okkur á að lestur byrjar heima, með forvitni, samtali og góðum sögum.
Nemendur lásu textabrot úr sögu Brynhildar sem heitir Silfurgengið sem er grípandi saga um vináttu og óvænt örlög. Við kynnumst Sirrýlei sem ætlar að halda skothelt 15 ára afmælispartí á meðan foreldrarnir eru erlendis. Plönin flækjast hins vegar þegar hún fær eldgamla nælu í afmælisgjöf frá ömmu sinni og lendir svo í ævintýri sem hún sá alls ekki fyrir.
Þórarinn Eldjárn er eitt ástsælasta skáld þjóðarinnar, fæddur í Reykjavík árið 1949. Hann er þekktur fyrir leikandi meðferð tungumálsins, skarpa kímnigáfu og ótrúlega næmni fyrir hrynjanda og hljómi málsins. Í verkum hans mætast húmor og hugvit á þann hátt að bæði börn og fullorðnir finna eitthvað við sitt hæfi. Hann hefur sent frá sér fjölda ljóða, sagna og bóka og hlotið margvíslegar viðurkenningar fyrir framlag sitt til íslenskrar bókmenningar.
Nemendur völdu sér eitt ljóð úr verkum Þórarins og fluttu í keppninni.
Að lokum fluttu nemendur ljóð að eigin vali.
Allir nemendur stóðu sig vel og á meðan dómnefndin var að bera saman bækur sínar var boðið upp á tónlistaratriði frá Katrínu Unu Sigurðardóttur og Öldu Máneyju Björgvinsdóttur en þær eru nemendur í Tónlistarskólanum á Tröllaskaga.
Dómnefndin mætti svo upp á svið og tilkynnti úrslitin:
1. sæti Stefanía Lilja Friðriksdóttir frá Dalvíkurskóla
2. sæti Trausti Loki Stefánsson frá Grenivíkurskóla
3. sæti Rakel Eva Vilhjálmsdóttir frá Þelamerkurskóla
Til hamingju Stefanía, Trausti og Rakel!
Einnig óskum við öðrum nemendum sem tóku þátt í keppninni til hamingju með góðan árangur.
Að lokum viljum við þakka öllum þeim sem komu og áttu þessa dásamlega stund með okkur!
| Tjarnarstígur | 625 Ólafsfjörður Norðurgata | 580 Siglufjörður Sími á skrifstofu: 464-9150 |
Skrifstofa skólans er opin frá
|
Tilkynningar um leyfi eða veikindi nemenda á Mentor eða í síma 464-9150/ ritari@fjallaskolar.is
Kt. 580706-0880