Þar sem hjartað slær

Þar sem hjartað slær
Þar sem hjartað slær

Nemendur á unglingastigi luku nýverið lotunni Þar sem hjartað slær, þar sem áhersla var lögð á að kynnast mannslíkamanum, starfsemi hinna ýmsu líffæra og samspili líffærakerfa líkamans. Í lok lotunnar fengu nemendur tækifæri til að kynnast líffærunum enn betur með verklegri vinnu þar sem þeir krufðu lambahjörtu og skoðuðu innri líffæri. Þar fengu þeir að rannsaka líffærin af eigin raun og tengja þannig fræðilega þekkingu við verklega reynslu.