Vorhátíð yngsta stigs - tímaflakk um ólík tímabil

Vorhátíð - yngsta stig 2026
Vorhátíð - yngsta stig 2026
Vorhátíð yngsta stigs fór fram þann 25. mars sl. í Tjarnarborg á Ólafsfirði. Nemendur settu þar upp glæsilega og skemmtilega sýningu ásamt kennurum sínum, en þema hátíðarinnar í ár var Tímaflakk. Helena Margrét Ásgerðardóttir, umsjónarkennari í 4. bekk, samdi leikrit sem leiddi áhorfendur í ferðalag um ólík og spennandi tímabil sögunnar.
 
Nemendur í 4. bekk gegndu hlutverki tímaferðalanga og tengdu atriðin saman með fróðleik og skemmtilegum innslögum á milli sýninga.
Nemendur í 1. bekk opnuðu sýninguna með því að bregða ljósi á lífið á síldartímanum. Þeir sungu Síldarvalsinn klædd í einkennandi gular svuntur og köflóttar skyrtur. Í kjölfarið steig 2. bekkur á svið í litríkum hippafötum, með blóm, sólgleraugu og mótmælaskilti, og flutti atriði úr hippatímabilinu við lagið Ég elska alla. Þá tók 3. bekkur við með kraftmiklu atriði þar sem nemendur, klæddir skærbleikum fötum með legghlífum og áberandi hárgreiðslum, dönsuðu við lagið Take On Me.

 

Sýningin tókst einstaklega vel og var greinilegt að mikill metnaður og samvinna lá að baki. Nemendur og kennarar voru stoltir af því að geta sýnt aðstandendum afrakstur margra vikna undirbúningsvinnu.

Sýningarstjóri var Sylvie Roulet, danskennari og undirleikari Haukur Orri Kristjánsson, tónlistarkennari. Þá lögðu allir umsjónarkennarar og starfsfólk yngsta stigs sitt af mörkum til að gera sýninguna að veruleika.
 
Við óskum öllum sem komu að sýningunni, og þá ekki síst nemendunum, innilega til hamingju með glæsilega og eftirminnilega vorhátíð.
 
Sjá upptöku hér fyrir neðan: