Heillaspor

Heillaspor – hlýja, tengsl og vellíðan í skólastarfi

Grunnskóli Fjallabyggðar hefur hafið innleiðingu á Heillasporum (e. Nurture) í skólastarfið með það að markmiði að efla vellíðan nemenda, styrkja félagsfærni og skapa jákvætt og öruggt skólaumhverfi þar sem öllum líður vel og allir fá tækifæri til að blómstra.

Heillaspor eru heildræn nálgun sem byggir á fræðum um tengsl, áhrif áfalla á þroska og líðan barna og jákvæðri sálfræði. Í nálguninni er lögð áhersla á að börn læri og þroskist best þegar þau upplifa öryggi, traust, hlýju og góð tengsl við fólkið í kringum sig. Jafnframt er horft til styrkleika hvers og eins og þess sem stuðlar að vellíðan, seiglu og jákvæðri sjálfsmynd.

 

Hvað felst í Heillasporum?

Í daglegu skólastarfi leggjum við meðal annars áherslu á að:

· Byggja upp jákvæð og traust tengsl milli nemenda og starfsfólks.

· Skapa öruggt og hlýlegt námsumhverfi þar sem allir tilheyra.

· Skilja hvernig reynsla og aðstæður geta haft áhrif á hegðun, líðan og nám barna.

· Efla sjálfsmynd, sjálfstraust og trú nemenda á eigin getu.

· Styðja nemendur í að þekkja, tjá og takast á við eigin tilfinningar.

· Rækta styrkleika, samkennd, þakklæti og jákvæð samskipti.

· Þjálfa félagsfærni og hjálpa nemendum að leysa ágreining og takast á við áskoranir á uppbyggilegan hátt.

 

Innleiðing Heillaspora í skólanum

Við erum nú á fyrstu stigum innleiðingar Heillaspora. Innleiðingin er þróunarferli sem tekur tíma og kallar á sameiginlega sýn, samvinnu og stöðuga ígrundun. Áhersla verður lögð á að starfsfólk fái fræðslu, stuðning og tækifæri til að þróa starfshætti sína í takt við hugmyndafræði Heillaspora.

Við munum innleiða nálgunina í áföngum og flétta hana smám saman inn í daglegt skólastarf, samskipti, kennslu og skólamenningu. Markmiðið er ekki að bæta við nýju verkefni heldur að efla þá vinnu sem þegar fer fram og skapa sameiginlegan grunn að enn betri samskiptum og stuðningi við nemendur.

 

Hlustað á raddir allra – kortlagning skólastarfsins

Mikilvægur þáttur í innleiðingu Heillaspora er að öðlast sem skýrasta mynd af því hvernig skólastarfið okkar lítur út í dag. Við viljum hlusta á ólík sjónarmið og fá fram upplifun þeirra sem tilheyra skólasamfélaginu okkar.

Til þess verður aflað upplýsinga með spurningakönnunum meðal foreldra, starfsfólks skólans og skólastjórnenda. Einnig verður óskað eftir þátttöku foreldra í rýnihópum og stofnaðir verða rýnihópar með nemendum á öllum skólastigum.

Með þessum hætti gefst ólíkum hópum innan skólasamfélagsins tækifæri til að koma sínum sjónarmiðum á framfæri og hafa áhrif á þróun skólastarfsins.

 

Tilgangurinn er að fá sem heildstæðasta mynd af veruleika skólastarfsins eins og hann er í dag. Niðurstöðurnar verða nýttar til að greina styrkleika, koma auga á tækifæri til úrbóta og ákveða hvaða skref eru mikilvægust í áframhaldandi innleiðingu Heillaspora.

Við leggjum áherslu á að raddir allra skipta máli. Með því að hlusta, læra hvert af öðru og vinna saman getum við byggt upp skólasamfélag þar sem vellíðan, öryggi, jákvæð tengsl og farsæld nemenda eru í forgrunni.

Við hvetjum foreldra til að taka virkan þátt þegar eftir því verður leitað. Framlag ykkar er mikilvægt í þessari vegferð.

 

Hlutverk Miðstöðvar menntunar og skólaþjónustu (MMS)

Miðstöð menntunar og skólaþjónustu (MMS) er faglegur bakhjarl Heillaspora á Íslandi og styður skóla og sveitarfélög við innleiðingu nálgunarinnar. MMS leggur meðal annars til fræðslu, stuðningsefni, faglega leiðsögn og starfsþróun fyrir starfsfólk og skólaþjónustu.

Samstarf skólans við MMS styður við að innleiðingin byggi á traustum fræðilegum grunni og að unnið sé markvisst að því að þróa og festa nýja starfshætti í sessi. Þannig fáum við stuðning og leiðsögn í því mikilvæga verkefni að skapa enn betra umhverfi fyrir nám og velferð barna.

 

Foreldrar eru mikilvægir samstarfsaðilar

Góð tengsl milli heimilis og skóla skipta miklu máli. Með sameiginlegri áherslu á hlýju, virðingu, öryggi og jákvæð samskipti getum við stutt enn betur við velferð og þroska barna.

Við munum miðla upplýsingum um framgang innleiðingarinnar eftir því sem verkefninu vindur fram og hvetjum foreldra til að fylgjast með og taka þátt í samtalinu um vellíðan og velferð nemenda.

 

Við viljum að hver nemandi finni að hann tilheyri, sé metinn að verðleikum, fái að njóta styrkleika sinna og hafi mikilvægu hlutverki að gegna í skólasamfélaginu.

Helga Helgadóttir leiðtogi innleiðingarteymis Heillaspora.