Allt skólahald fellur niður á morgun

Allt skólahald fellur niður í Grunnskóla Fjallabyggðar á morgun, mánudaginn 7. febrúar, að fengnum tilmælum frá aðgerðarstjórn Almannavarna Norurlands eystra og lögreglustjóra á Norðurlandi eystra, sem jafnframt hvetur fólk til að halda sig sem mest heima á meðan veður gengur yfir.

Sjá frétt á Fjallabyggd.is: https://www.fjallabyggd.is/is/stjornsysla/fjallabyggd/frettir-og-tilkynningar/tilkynning-til-ibua-fjallabyggdar-3