Skólaheimsókn

Verðandi 1. bekkur
Verðandi 1. bekkur

Frá áramótum hafa leikskólabörn sem fara í 1. bekk á næsta skólaári komið í fjórar skólaheimsóknir. Þau hafa fengið að fara í íþróttir, verkgreinar, kennslustund með núverandi 1. bekk, hádegismat og frímínútur. Það verður gaman að taka á móti þessum flotta hópi í haust.