Tinna og Steingrímur kepptu fyrir hönd Íslands

Tinna og Steingrímur
Tinna og Steingrímur
Tinna Hjaltadóttir og Steingrímur Árni Jónsson nemendur í 10. bekk Grunnskóla Fjallabyggðar voru fulltrúar Íslands í Evrópukeppni í fjármálalæsi sem fram fór í Brussel 23. maí síðastliðinn. Í keppninni svara þátttakendur spurningum um þekkingu þeirra almennt á persónulegum fjármálum eins og um sparnað og lán og vexti, áhrif verðbólgu á virði peninga og mikilvægi netöryggis.
 
Ísland hafnaði í öðru sæti af Norðurlöndunum á eftir Svíþjóð og voru í miðjunni af þeim 30 löndum sem tóku þátt. Sigurvegarar keppninnar var lið Ítalíu. Yfir 73.000 nemendur í um 3000 grunnskólum í 30 löndum Evrópu tóku þátt í undankeppnum heima fyrir og þar af hátt í 2.000 nemendur í 60 skólum hér á landi þar sem Grunnskóli Fjallabyggðar bar sigur úr bítum. Keppendur frá Íslandi voru því hlutfallslega mun fleiri en almennt innan Evrópu. Fulltrúar sigurskólanna í hverju landi komu síðan saman til Brussel í Evrópukeppnina.
 
Tinna og Steingrímur voru glæsilegir fulltrúar Íslands og voru til fyrirmyndar í einu og öllu!  Við þökkum Fjármálaviti kærlega fyrir frábæra ferð og að vekja athygli á mikilvægi kennslu í fjármálafræðslu.
 
Sjá einnig eftirfarandi frétt á heimasíðu Samtaka fyrirtækja í fjármálaþjónustu: