22.10.2010
Síðastliðinn þriðjudag hittust nemendur yngri deilda Grunnskólans í Fjallabyggð og tóku þátt í
Norræna skólahlaupinu. Með norræna skólahlaupinu er leitast við að hvetja nemendur, kennara og annað starfslið skólanna til þess að
æfa hlaup og auka við hreyfingu sína. Lögð er áhersla á að kynna nauðsyn þess að hreyfa sig og reyna á líkama sinn á
ýmsan hátt og stuðla þannig að betri heilsu og vellíðan.
Lesa meira
03.10.2010
Alla daga er farið frá barnaskólahúsinu í Ólafsfirði kl. 8.20 og hefst kennsla í unglingadeild kl. 8.50.
Ferðir um göngin verða nokkrar daglega frá skólahúsinu Hlíðarvegi og ættu flestir nemendur að ná heimferð til
Ólafsfjarðar stuttu eftir að skóladegi þeirra lýkur. Heimferðir eru sem hér segir:
Mánudagur: kl. 12.50, 14.40 og 16.00
Þriðjudagur: kl. 13.50, 15.25 og 16.30
Miðvikudagur: kl. 12.50, 14.40 og 16.00
Fimmtudagur: kl. 13.50, 15.25 og 16.30
Föstudagur: kl. 12.50, 14.40 og 16.00
Fleiri ferðir eru í boði eins og sjá má á heimasíðu sveitarfélagsins http://www.fjallabyggd.is/
Lesa meira
08.09.2010
Grunnskóli Fjallabyggðar tekur nú
þátt í átakinu Göngum í skólann sem Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands , Umferðarstofa,
Ríkislögreglustjórinn, Menntamálaráðuneytið, Slysavarnafélagið Landsbjörg, Lýðheilsustöð og Heimili og skóli standa
að. Þetta er í þriðja skiptið sem skólar á Íslandi taka þátt í þessu alþjóðlega verkefni. Verkefninu er ætlað að hvetja nemendur, foreldra og starfsmenn skóla til að ganga, hjóla, fara á línuskautum eða
á annan virkan hátt til og frá skóla.
Kennarar yngri deildanna hér í
skólanum munu halda utan um skráningu þeirra sem koma gangandi í skólann næstu 2 vikurnar og að þeim loknum munu verða afhentar
viðurkenningar til þeirra bekkja sem best hafa staðið sig. Við hvetjum því foreldra til að taka átakinu vel og virkja börn sín til
þátttöku. Nánari upplýsingar um átakið má finna á síðunni www.gongumiskolann.is
Lesa meira
28.08.2010
Í vetur verður boðið upp á skólamötuneyti. Bréf til foreldra fór í póst s.l. fimmtudag. Í því voru
upplýsingar um skólabyrjun og aðgangsorð að www.matartorg.is.
Hægt er að hefja skráningu nemenda í mat strax.
Gengið hefur verið til samninga við Hótel Brimnes í Ólafsfirði og Allann Siglufirði um framleiðslu á skólamáltíðum.
Verð á máltíð er óbreytt kr. 380.
Lesa meira
23.08.2010
Kynningarfundir fyrir foreldra um skipulag nýja skólans sem til stóð að halda 24. og 25. ágúst verða færðir til. Fundur fyrir foreldra nemenda
í 1.-10. bekk Ólafsfirði verður fimmtudaginn 26. ágúst kl. 18 í skólahúsinu við Tjarnarstíg. Fundur fyrir foreldra
nemenda í 1.-10. bekk á Siglufirði verður mándaginn 30. ágúst kl. 18 í skólahúsinu við Hlíðarveg. Á fundunum
verður farið yfir skipulag starfsstöðva skólans og skólaakstur fyrir nemendur í unglingadeild.
Lesa meira
10.08.2010
Innkaupalistar eru nú komnir á netið fyrir alla bekki. Sjá innkaupalista hér til vinstri á síðunni.
Lesa meira
10.08.2010
Nýr grunnskóli í Fjallabyggð hefur verið stofnaður og tekur hann við af Grunnskóla Ólafsfjarðar og Grunnskóla Siglufjarðar.
Lesa meira
10.08.2010
Upplýsingar um skipulag, stjórnendur, umsjónarkennara og bekkjadeildir er að finna undir tenglinum Um
skólann í tenglalínu hér að ofan.
Upplýsingar um sýn skólastjórnenda og áherslur nýs skóla er að finna undir tenglinum Skólanámskrá í tenglalínu hér að ofan.
Lesa meira