Jákvæð samskipti - fyrirlestur

JÁKVÆÐ SAMSKIPTI 

Fyrirlestur fyrir nemendur 6.-10. bekkjar

fimmtudaginn 24. mars

Pálmar Ragnarsson er fyrirlesari og körfuboltaþjálfari sem hefur slegið í gegn með fyrirlestrum um jákvæð samskipti. Fyrirlesturinn hefur hann flutt fyrir marga af stærstu vinnustöðum landsins, ýmis ráðuneyti, fjölmarga skóla og fleiri. Í fyrirlestrinum fjallar hann á skemmtilegan hátt um það hvernig nemendur geta æft sig í samskiptum og því að hafa góð áhrif á samnemendur sína. Hann leggur áherslu á það hvernig það getur hjálpað okkur í lífinu að æfa okkur í góðum samskiptum og hvernig það getur á sama tíma gert lífið skemmtilegra fyrir fólkið í kringum okkur.

 

Fyrirlesturinn er í boði foreldrafélagsins