Opni skóladagurinn heppnaðist vel

Opni skóladagurinn
Opni skóladagurinn

Haldinn var opinn skóladagur þriðjudaginn 16. maí þar sem gestum og gangandi var boðið að koma í heimsókn í skólann og fylgjast með nemendum við vinnu sína. Opið var í skólahúsunum í einn og hálfan til tvo klukkutíma á hvorum stað og kom töluverður fjöldi fólks í heimsókn til okkar. Gestum var boðið upp á kaffi og síðan gátu þeir gengið um skólann, kíkt inn í kennslustundir og hitt nemendur og kennara. Sjá má myndir frá deginum hér fyrir neðan: