Göngum í skólann

 

Göngum í skólann hefst

Grunnskólinn Fjallabyggðar ætlar að halda keppni milli bekkja og hvetja alla til þess að ganga í skólann eða hjóla. Að lokum verður verðlaunaafhending um gullskóinn og silfurskóinn.Markmið verkefnisins eru að hvetja börn til að tileinka sér virkan ferðamáta í og úr skóla og auka færni þeirra til að ferðast á öruggan hátt í umferðinni. Ein einfaldasta leiðin til að auka hreyfingu í daglegu lífi er að velja virkan ferðamáta, svo sem göngu, hjólreiðar, hlaup, línuskauta eða hjólabretti. Ávinningurinn er ekki aðeins bundinn við andlega og líkamlega vellíðan heldur er þetta einnig umhverfisvæn og hagkvæm leið til að komast á milli staða.

Árlega taka milljónir barna frá yfir 40 löndum víðs vegar um heiminn þátt í Göngum í skólann með einum eða öðrum hætti.

Tekið af vef ÍSÍ https://isi.is/almenningsithrottir/gongum-i-skolann/