Skólaslit - sjá upplýsingar hér!

Skólaslit Grunnskóla Fjallabyggðar vorið 2022

1. - 5. bekkur 

Skólaslit fyrir 1. - 5. bekk verða í Siglufjarðarkirkju föstudaginn 3.júní kl. 11:00-12:00.

Nemendur mæta í skólahúsið við Norðurgötu og ganga fylktu liði með starfsfólki upp í kirkju og eiga góða stund saman. Þeir foreldrar sem vilja geta komið og gengið með okkur frá skólahúsinu eða mætt beint í kirkjuna.

Skólarúta fer frá Ólafsfirði kl. 10:30 en nemendur frá Siglufirði mæta kl. 10:50 við skólahúsið í Norðurgötu.

Skólabíll fer til Ólafsfjarðar frá Siglufjarðarkirkju að athöfn lokinni.

 

6. - 10. bekkur 

Skólaslit fyrir 6. - 9. bekk og útskrift 10. bekkinga  verða í Tjarnarborg 3.júní kl. 17:00

Skólabíll fer frá Siglufirði kl. 16:30 og til baka að skólaslitum loknum með nemendur í  6. - 9. bekk. Nemendur í 10. bekk, foreldrar þeirra og starfsfólk skólans verða eftir til að eiga saman notalega kveðjustund. 

 

Allir velkomnir á skólaslitin og í útskriftina.

 

Skólastjóri