Sóttvarnir og skólastarf á Covid tíma

Sóttvarnir og skólastarf á Covid tíma   

Skólastarfið hefur verið hefðbundið í Grunnskóla Fjallabyggðar frá hausti og vonumst við til að það geti orðið það áfram þrátt fyrir Covid veiruna sem vofir enn yfir okkur. Við þurfum öll að vera vel vakandi og passa upp á okkur, hvar við erum, hvað við gerum og hverja við hittum, bæði starfsmenn skóla og nemendur. Innan okkar hóps er fólk sem hefur undirliggjandi sjúkdóma og því brýnt að fara að öllu með gát. Við höldum áfram  eins og við gerðum í vor með öflugar sóttvarnir og þrif í skólahúsnæðinu og aldrei hefur hlutverk skólaliða verið mikilvægara. Við höldum komu foreldra og/eða annarra gesta í algjöru lágmarki inn til okkar og viljum með þeim hætti verja okkur og nemendur sem best verður á kosið.
Hér fyrir neðan eru nokkrar upplýsingar varðandi það hvernig við högum okkur í Grunnskóla Fjallabyggðar þegar kemur að sóttvörnum.

  • Við förum eftir tilmælum almannavarna.
  • Við sótthreinsum hjá okkur skólarýmin og spritt er í öllum kennslurýmum, í anddyri, í matsal og á fleiri stöðum.
  • Ekki er auðvelt að skipta starfsfólki niður á svæði en við reynum að halda starfsfólki innan sinnar starfsstöðvar eins og kostur er en til þess að halda uppi öllum námsgreinum þá eru einstaka kennarar sem fara á milli stöðva til að sinna verk-, list- og íþróttakennslu.
  • Við reynum að funda að mestu með fjarfundarbúnaði en ef við fundum innanhúss þá fundum við í litlum hópum og gætum þess að fjarlægðarreglum sé haldið.
  • Við biðlum til foreldra og annarra um að koma ekki inn í skólahúsið nema að brýnni nauðsyn og gera þá boð á undan sér.  
  • Við munum krefja fólk um að vera með grímur þurfi það að koma inn til okkar.
  • Starfsfólk Hallarinnar skammtar mat til nemenda og starfsmanna.
  • Starfsfólk Hallarinnar notar grímu þegar það kemur inn í skólahúsin með hádegismatinn.
  • Nemendur og starfsmenn eiga að vera heima ef þeir finna fyrir einkennum sem gætu bent til Covid-19.
  • Frístund og lengd viðvera starfar með eðlilegum hætti nema annað verði tilkynnt.
  • Í skólaakstri er grímuskylda fyrir þá sem nýta skólabíl, þ.e. starfsmenn skólanna í Fjallabyggð og nemendur MTR.

Ef upp kemur smit í skólanum fer smitrakning í gang. Þá gæti farið svo að skólinn, allur eða að hluta, fari í úrvinnslusóttkví sem getur staðið yfir í allt að tvo til fjóra daga. Á þeim tíma er verið að rekja smit og hafa samband við þá sem þurfa að fara í sóttkví. Að lokinni úrvinnslusóttkví kemur í ljós hverjir þurfa að fara í sóttkví.

Allar upplýsingar koma frá skólanum ef til þessa kemur og munum við sjá til þess að foreldrar séu vel upplýstir í gegnum tölvupóst og með öðrum leiðum ef þarf. Foreldrar eru hvattir til að fylgjast vel með tölvupósti sínum. Það er afar mikilvægt að foreldrar, nemendur og Starfsfólk. upplifi öryggi og viti að í Grunnskóla Fjallabyggðar er gætt vel að sóttvörnum.
Förum varlega. Við vinnum þetta saman.

English below

The school work has been traditional at Fjallabyggð Primary School since the autumn and we hope that it can continue to be so despite the Covid virus that is still looming over us. We all need to be vigilant and take care of ourselves, where we are, what we do and who we meet, both school staff and students. Within our group are people who have underlying diseases and therefore it is important to be careful with everything. We will continue as we did this spring with strong infection control and cleaning in the school premises and the role of school staff has never been more important.
We keep the arrival of parents and / or other guests to us to a minimum and we want to protect ourselves and the students as best we can.

Below is some information regarding how we behave at Grunnskóli Fjallabyggðar when it comes to disease control.

  • We follow the recommendations of the Civil Defense.
  • We disinfect our school spaces and keep disinfectant in all teaching spaces, in the lobby, in the dining room and in other places.
  • It is not easy to divide staff into areas, but we try to keep staff within their workplace as much as possible, but in order to maintain all subjects, there are individual teachers who go between stations to teach work, art and sports. .
  • We try to meet mostly with teleconferencing equipment, but if we meet indoors we meet in small groups and make sure that the distance rules are followed.
  • We urge parents and others not to enter the school building unless absolutely necessary and make an invitation in advance.
  • We will require people to wear masks if they come to us.
  • Höllin staff distributes food to students and staff.
  • Höllin staff wears a mask when entering the school buildings with lunch.
  • Students and staff should stay home if they experience symptoms that could indicate Covid-19.
  • Leisure time and length of stay operate normally unless otherwise announced.
  • Driving to school is a must for those who use a school bus, ie. employees of the schools in Fjallabyggð and students of MTR.

If an infection occurs in the school, infection tracking starts. The school could then, in whole or in part, go into a processing quarantine that can last for up to two to four days. At that time, infections are being traced and those who need to be quarantined are to be contacted. After the quarantine is processed, it becomes clear who needs to go into quarantine. All information will come from the school if this happens and we will ensure that parents are well informed via email and other means if necessary. Parents are encouraged to keep an eye on their emails. It is extremely important that parents, students and staff feel safe and know that Fjallabyggð Primary School takes good care of infection control.
Let's be careful. We work on this together.