Fréttir

Glæsilegur stórsýningardagur

Það var mikið líf og fjör og margt um manninn á stórsýningardegi skólans á Siglufirði. Þar sýndu nemendur eldri deildar skólans og yngri deildarinnar á Siglufirði afrakstur vetrarins.
Lesa meira

Stórsýningardagur

Næstkomandi laugardag 28. maí, kl. 11.00 – 14.00, verður haldin sýning á verkum nemenda Grunnskóla Fjallabyggðar í skólahúsinu við Norðurgötu. Á sýningunni má sjá verk eftir nemendur í yngri deild Siglufirði og eldri deild skólans. Önnur sýning verður á Sjómannadag á verkum nemenda í yngri deild Ólafsfirði. Nánar auglýst síðar.
Lesa meira

Starfsáætlun

Nú er starfsáætlun skólans komin á vefinn og má nálgast hana hér
Lesa meira

Foreldrafélag Grunnskóla Fjallabyggðar

Foreldrafélag Grunnskóla Fjallabyggðar var stofnað í gær fimmtudaginn 12. maí. Fundurinn var haldinn í skólahúsinu Ólafsfirði og sóttu hann tíu manns. Eftirtaldir foreldrar voru kosnir  í stjórn: Auður Eggertsdóttir, Rut Viðarsdóttir , Hrönn Gylfadóttir, Kristján Hauksson, Berglind Ýr Birkisdóttir og Gunnar Smári Helgason sem jafnframt var kosinn formaður félagsins. Er foreldrum barna í skólanum hér með óskað til hamingju með nýtt foreldrafélag.
Lesa meira

Stofnfundur foreldrafélags

Foreldrafélag Grunnskóla Fjallabyggðar verður stofnað n.k. fimmtudag 12. maí. Fundurinn verður haldinn í skólahúsinu Ólafsfirði og hefst kl. 18. Eftirtaldir foreldrar gefa kost á sér í stjórn: Auður Eggertsdóttir, Gunnar Smári Helgason, Hrönn Gylfadóttir, Kristján Hauksson, Ólöf Ásta Salmannsdóttir og Rut Viðarsdóttir.   Dagskrá fundarins: §  Kosning fundarstjóra og fundarritara §  Lög Foreldrafélags Grunnskóla Fjallabyggðar kynnt og borin upp til samþykktar §  Kosning formanns foreldrafélags og annarra stjórnarmanna §  Kosning tveggja skoðunarmanna reikninga §  Önnur mál        
Lesa meira

Hreystidagur á Ólafsfirði

Föstudaginn 6. maí var haldin hreystidagur í Ólafsfirði. Nemendur fóru í Tarsanleik í salnum, boðhlaup í sundlauginni, tímatöku í vatnsrennibrautinni og ratleik um skólalóðina. Dagurinn tókst vel í alla staði enda veðrið gott og nemendur duglegir að taka þátt í því sem boðið var uppá. Nokkrar myndir af deginum eru komnar inn  hér.
Lesa meira

Brúðuleikhús

Síðastliðin þriðjudag  kom Bernds Ogrodniks í heimsókn til okkar með nýja íslenska leikverkið Gilitrutt eftir þjóðsögunni um skessuna ógurlegu og bóndakonuna sem vildi sleppa auðveldlega frá skyldum sínum og ábyrgð. Það voru nemendur í 1. - 6. bekk sem sáu sýninguna við góðan fögnuð. Sýningin um Gilitrutt er fjölskyldusýning og er leikverkið mikið sjónarspil. Bernd segir að þessi sýning sé ástaróður sinn til Íslands og má sjá það meðal annars á því stórkostlega listaverki sem leikmyndin er en hún er öll unnin úr þæfðri ull. Einnig eru brúðurnar og annað í verkinu unnið af miklu listfengi.
Lesa meira

Drengir í fluguhnýtingavali í eftirminnilegri veiðiferð

Það var 11 manna hópur sem lagði af stað úr Fjallabyggð seinni part mánudagsins  4. apríl, ferðinni var heitið austur í Kelduhverfi. Þar átti að veiða í Litluá, daginn eftir.  Hópurinn samanstóð af níu drengjum í 9. bekk Grunnskóla Fjallabyggðar, einum kennara og föður eins drengjanna. Þessir drengir höfðu verið í fluguhnýtinga vali  í skólanum í vetur og hnýtt nokkrar eigin flugur.  Aðeins einn drengjanna hafði áður veitt á flugustöng.  
Lesa meira

Vilt þú vekja athygli á verðugu verkefni eða metnaðarfullu viðfangsefni?

Foreldraverðlaun Heimilis og skóla – landssamtaka foreldra, verða afhent í 16. sinn við athöfn í  Þjóðmenningarhúsinu þriðjudaginn 24. maí næstkomandi.   
Lesa meira

Fuglaskoðunarferð

  Sara, Sólveig, Þórunn og Helena könnuðu hvort merktir jaðrakanar væru á leirunum. Þær sáu enga merkta, en þarna voru um 40 jaðrakanar, lóur, stelkar, hettumáfar og nokkrar andategundir, t.d. hin litskrúðuga straumönd.
Lesa meira