11.03.2011
Hér
má sjá niðurstöður úr Foreldrakönnun sem lögð var fyrir á foreldradaginn. 59 svöruðu könnuninni sem er um 72% þátttaka.
Lesa meira
10.03.2011
Í morgun fór fram lokakeppnin í Upplestrarkeppni 7. bekkjar og þar voru valdir fjórir lesarar og einn til vara til að vera fulltrúar skólans
í Stóru upplestrarkeppninni sem fer fram á landsvísu ár hvert en er þó landshlutaskipt.
Lesa meira
25.02.2011
Fyrir ekki svo
löngu síðan heimsótti 6. bekkur á Ólafsfirði verkstæði Sigurjóns Magnússonar. Þar fer aðallega fram smíði
á sjúkra- og slökkvibílum. Þar er þó einnig verið að gera við heita potta, báta og ýmislegt annað sem smíðað
er úr trefjaplasti. Þess má geta að rúmur helmingur þeirra sjúkrabíla sem eru í notkun á Íslandi í dag voru
smíðaðir á Ólafsfirði.
Lesa meira
22.02.2011
Síðastliðinn föstudag fór þorrablót eldri deildar fram á Allanum. Á boðstólum voru veitingar sem nemendur í
matreiðsluvali höfðu útbúið; sviðasulta, rófustappa, kartöflumús, rúgbrauð og flatbrauð auk þess sem Allinn bauð
uppá grjónagraut og slátur.
Lesa meira
17.02.2011
Það var aldeilis líf og fjör á skíðasvæðinu á Siglufirði í dag þegar nemendur eldri deildar fjölmenntu þangað
á skíðadegi. Veðrið lék við okkur, logn og blíða, og sólskin í Bungunni.
Lesa meira
16.02.2011
Eineltiskönnun er fastur liður í Olweusaráætluninni gegn einelti og andfélagslegu atferli. Niðurstöður könnunarinnar
eru afar mikilvægar því að þær segja til um hvernig nemendur meta aðstöðuna og andrúmsloft skólans. Hvað telja þau að hinir
fullorðnu í skólanum geri til að koma í veg fyrir einelti. Hvað munu þau gera ef ég lendi í einelti o.s.frv.
Lesa meira
15.02.2011
Þann 11.2. var 112 dagurinn þar sem fólk er minnt á mikilvægi þess að huga að slysavörnum, að læra skyndihjálp og ýmislegt
fleira sem tengist málaflokknum.
Lesa meira
14.02.2011
Magnús Sveinsson
tók upp skemmtilegt myndband af hæfileikakeppninni. Hægt er að sjá það á slóðinni hér fyrir neðan og hvetjum við alla til að skoða myndbandið og sjá þessu flottu frammistöðu hjá
krökkunum.
http://www.vimeo.com/19889840
Lesa meira
11.02.2011
Söng- og hæfileikakeppni
Grunnskóla Fjallabyggðar var haldin í Tjarnarborg í gær að viðstöddu fjölmenni þar sem rúmlega 50 þátttakendur kepptu
í 28 atriðum. Flestir keppendur sungu en einnig voru sýnd dansatriði og spilað á hljóðfæri. Allir keppendur fengu viðurkenningu fyrir
þátttökuna auk þess sem veitt voru verðlaun, bæði fyrir hópatriði og einstaklingsatriði.
Lesa meira
07.02.2011
Fimmtudaginn 10. febrúar kl. 17.30 verður söng-
og hæfileikakeppni grunnskólans haldin í Tjarnarborg. Keppendur koma úr 1.-10. bekk og taka þátt ýmist einir eða í hóp. Rúta
fer frá Torginu kl. 17.00 og heim aftur að keppni lokinni.
Enginn aðgangseyrir - allir velkomnir.
Lesa meira